Morgunblaðið

Hollenskur trúður í Fríkirkjunni

13 dec 2011

Hollenski trúðurinn Herman van Veen kemur fram í Fríkirkjunni næsta föstudag.

Van Veen á að baki 45 ára feril og er þetta fyrsta heimsókn hans til Íslands. Hann hefur ferðast um allan heim þar sem hann syngur og spilar en tónleikarnir bera yfirskriftina Ákveðin natni eða A certain Tenderness.